Brottför

Ísland er land þitt 

Ísland er land þitt, og ávallt þú geymir
Ísland í huga þér, hvar sem þú ferð.
Ísland er landið sem ungan þig dreymir,
Ísland í vonanna birtu þú sérð,
Ísland í sumarsins algræna skrúði,
Ísland með blikandi norðljósa traf.
Ísland að feðranna afrekum hlúði,
Ísland er foldin, sem lífið þér gaf.

Íslensk er þjóðin sem arfinn þinn geymir
Íslensk er tunga þín skír eins og gull.
Íslensk er sú lind, sem um æðar þér streymir.
Íslensk er vonin, af bjartsýni full.
Íslensk er vornóttin, albjört sem dagur,
Íslensk er lundin með karlmennskuþor.
Íslensk er vísan, hinn íslenski bragur.
Íslensk er trúin á frelsisins vor.

Ísland er land þitt, því aldrei skal gleyma
Íslandi helgar þú krafta og starf
Íslenska þjóð, þér er ætlað að geyma
íslenska tungu, hinn dýrasta arf.
Ísland sé blessað um aldanna raðir,
íslenska moldin, er lífið þér gaf.
Ísland sé falið þér, eilífi faðir.
Ísland sé frjálst, meðan sól gyllir haf.

       Magnús Þór Sigmundsson / Margrét Jónsdóttir


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Árni Gunnar Ásgeirsson

Takk fyrir síðast og góða ferð!

Árni Gunnar Ásgeirsson, 9.8.2007 kl. 18:11

2 identicon

Góða ferð, Heiða mín. Við sjáumst á MSN-inu.

Lilja (IP-tala skráð) 10.8.2007 kl. 08:30

3 identicon

Hafðu það sem mestubestast þarna úti stelpa!

Lilja Sif (IP-tala skráð) 13.8.2007 kl. 14:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband