Þþþbeþial pibbl klööööb

Ég undirrituð, Heiða María Sigurðardóttir, sæki hér formlega um inngöngu í Þþþbeþial pibbl klööööb. Ég tel inntökuskilyrðum fullnægt með því að a) kalla mögulegan leiðbeinanda minn nörd og b) bjóðast til spila fyrir hann íslenska þjóðsönginn á nefið á mér. Fyrrnefndur prófessor kennir einnig áfangann sem ég kom of seint í próf í um daginn.

Virðingarfyllst,

Heiða María Sigurðardóttir 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Grétar Sigurjónsson

Þú ert allavega á góðri leið með að vera heiðursfélagi í þessum klúbbi :D Annars hef ég sagt leiðbeinandanum mínum að hætt að tala og hlusta á það sem ég var að segja og sagt öðrum að hann ætti nú örugglega við einhver félagsleg vandamál að stríða... Ég ætti kannski að sækja um inngöngu líka

Jón Grétar Sigurjónsson, 6.10.2007 kl. 10:54

2 Smámynd: Elis, Lilja og co.

Þetta er nú ekkert. Ég söng eitt sinn klámvísu fyrir aðstoðarforstjórann í fyrirtækinu sem ég vann hjá, blindfull í einhverju vinnuteitinu. 

Elis, Lilja og co., 7.10.2007 kl. 01:44

3 identicon

Ég óska líka eftir því að fá að gerast meðlimur í þessum einstaka klúbbi... Og ef ég fæ inngöngu þá fer ég í framboð og býð mig fram sem formann eða eitthvað... ég nefnilega var á fundi með  mjög alvörugefnum forstjóra, mikilvægasta viðskiptavini fyrirtækisins sem ég vinn hjá. Fundurinn var vegna smá klúðurs í útreikningi þeirra og ég var að tjá mig um að þetta væri ekki nógu gott.. Þá spurði hann mig hvað ég myndi gera ef hann gerði þetta aftur.... og ég sagði við manninn: Þá bara rassskelli ég þig... :$  ehhh... rosa pró... ómægod... :) 

Ásta María (IP-tala skráð) 7.10.2007 kl. 23:57

4 Smámynd: Heiða María Sigurðardóttir

Mwahahaha, endilega haldið áfram með sögurnar

Heiða María Sigurðardóttir, 8.10.2007 kl. 01:54

5 identicon

Ég get því miður ekki sótt um inngöngu þar sem ég er fullkomin (ég skal svo láta vita hvað ég geri heimskulegt af mér sem verður örugglega afleiðing þess að þykjast vera fullkomin).

Lilja Rotta (IP-tala skráð) 8.10.2007 kl. 17:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband